Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

leiðsögn í Listasafninu á Akureyri

$
0
0

Fimmtudaginn 12. maí kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri um ljósmyndasýninguna Fólk / People, en þar sýna sjö ólíkir listamenn verk sín. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna. Aðgangur er ókeypis.

Fólk / People segir áhorfandanum sögur af fólki og gefur innsýn í verk sjö listamanna sem allir vinna með ljósmyndir á ólíkan hátt. Á dögum sjálfsmyndanna (e. selfie) hafa portrettmyndir öðlast nýja merkingu og hér gefur að líta fólk í ólíkum aðstæðum séð með augum ólíkra listamanna í gegnum linsur fjölbreyttra myndavéla.

Listamennirnir eru Barbara Probst, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hrefna Harðardóttir, Hörður Geirsson, Ine Lamers og Wolfgang Tillmans. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.

Sýningin stendur til 29. maí og er opin þriðjudaga – sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.

The post leiðsögn í Listasafninu á Akureyri appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356