LANDSLAG
Þóra Björk Schram sýnir handtuftuð og flosuð teppi
Opnuð hefur verið ný sýning Á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Aðalstræti 10.
Teppin sem þar eru sýnd eru hönnuð af Þóru Björk Schram textílhönnuði. Þau eru handtuftuð og flosuð úr 100 % íslenskri ull. Þau eru því bæði sterk og mjúk og henta þar af leiðandi jafnt sem vegg- og gólfteppi. Þóra Björk vinnur verk sín út frá íslenskri náttúru, landslagi, jurtum og hverum. Þóra Björk vinnur teppin eftir pöntunun og getur unnið teppin í hvaða formum og stærðum sem er.
Þóra Björk Schram hannar bæði textílverk og málar málverk. Hún byggir list sína á margvíslegri tækni, litameðferð og notar mynstur sem hún vinnur með og blandar á einn eða annan hátt bæði í málverkin og textílinn. Þóra Björk leikur sér með áferð, mynstur og stemmningu.
Þóra Björk rekur Skúmaskot sem er hönnunar- og listagallerí ásamt níu listakonum og hönnuðum.
Sýningin LANDSLAG er opin alla daga vikunnar og stendur út ágúst.
Verið velkomin!