Kæru vinir,
Fimmtudaginn 18. febrúar eru liðin áttatíu ár frá því að ég leit dagsins ljós í fyrsta sinn. Ég ætla að halda upp á daginn með smá sýningu í Listasal Mosfellsbæjar. Þar sýni ég nokkur málverk sem myndir eru birtar af í bók sem ég er höfundur að og gaf út í tilefni af þessum tímamótum. Einnig verður bókin sjálf til sýnis og því hægt að sjá hvernig prentun og vinnsla hefur til tekist.
Sýningin í Listasal Mosfellsbæjar verður opnuð kl. 16 fimmtudaginn 18. febrúar og verður opin þar fram á laugardag 27. febrúar á opnunartíma Bókasafns Mosfellsbæjar. Opnunartímar bókasafnins: mánudaga til föstudags 12 – 18. Laugardaga 13 – 17. Lokað sunnudaga
Einnig verður opið á vinnustofu minni og heimili opnunarhelgina, föstudag , laugardag og sunnudag 19.-21. febrúar frá kl. 14 – 18. Mér þætti vænt um að sjá sem flesta á þessum dögum ef fólk hefur tækifæri til þess að koma, en ég vil leggja áherslu á það að gjafir og blóm eru afþökkuð og einnig lofræður.
Bókin UNDIR REGNBOGANN verður til sölu við opnun sýningarinnar í Listasalnum á sérstöku afmælisafsláttarverði kr 5.000, og svo á Hulduhólum þessa helgi.
Bestu kveðjur –
Steinunn Marteinsdóttir
The post Sýning í Listasal Mosfellsbæjar – Steinunn Marteinsdóttir appeared first on sím.