Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Skapaðu þitt eigið listaverk á Safnanótt!

$
0
0

Skapaðu þitt eigið listaverk á Safnanótt!

Föstudaginn 5. febrúar kl. 19-24

Það verður mikið um að vera í Listasafni Reykjavíkur á Safnanótt. Við opnum glæsilega Kjarvalssýningu á Kjarvalsstöðum og þar mun starfsfólk safnsins leiða gesti um sýninguna sem inniber fjölda verka úr sjaldséðu einkasafni. Einnig verða leiðsagnir um sýningar okkar í Hafnarhúsi og í Ásmundarsafni. Brugðið verður á leik í fjölskylduvænni límbandssmiðju í Hafnarhúsi, litið til stjarnanna í Ásmundarsafni og gestum verður boðið upp á fjölbreytta tónlist. Í Hafnarhúsi verður pop-up vínbar frá Frú Laugu. Eitthvað fyrir alla og frítt inn!

Safnanótt – Dagskrá

ÁSMUNDARSAFN / Sigtún, 105 Reykjavík

Kl. 19-24

Viltu vita meira um sýninguna?

Geimþrá

Starfsfólk frá fræðsludeild Listasafns reykjavíkur verður á staðnum og fræðir gesti um sýninguna Geimþrá sem nú stendur yfir í Ásmundarsafni.

Kl. 19-22

Stjörnuskoðun

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness stendur fyrir stjörnu-skoðun í garðinum umhverfis Ásmundarsafn. Félagsmenn verða með nokkra stjörnusjónauka á staðnum og fræða gesti og gangandi um hin ýmsu fyrirbæri himingeimsins.

Kl. 22

Tónleikar: DJ flugvél og geimskip

Tónlistarkonan Steinunn Harðardóttir, sem kallar sig DJ flugvél og geimskip, heldur tónleika á sýningunni Geimþrá í Ásmundarsafni.

HAFNARHÚS / Tryggvagata 17, 101 Reykjavík

Kl. 19-24

Viltu vita meira um sýninguna?

Tilurð Errós 1955-1964 / Monika Grzymala: Hugboð / Aftur í sandkassann – Listir og róttækar kennsluaðferðir / Sæmundur Þór Helgason: Ávöxtun %

Starfsfólk frá fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur verður á staðnum og fræðir gesti um yfirstandandi sýningar í Hafnarhúsi.

Kl. 19-21

Teip-smiðja

Skapaðu þitt eigið listaverk! Gestum er boðið að búa til þrívíða skúlptúra úr límbandi í fjölnotasal Hafnarhússins undir áhrifum frá sýningu Moniku Grzymala, Hugboð sem nú stendur yfir í A sal. Þar vinnur listamaðurinn innsetningu úr lituðu límbandi.

Kl. 19-24

Pop-up vínbar Frú Laugu á 2. hæð

Hverfisverslunin Frú Lauga flytur inn léttvín sem hægt er að panta á heimasíðu fyrirtækisins www.frulauga.is. Vínin eru lífræn eða bíódýnamísk (lífefld) og án aukaefna. Gestum Hafnarhúss á Safnanótt gefst kostur á því að bragða á vínunum á pop-up barnum á annarri hæð hússins.

Kl. 21-24

DJ Krystal Carma

Plötusnúðurinn Krystal Carma (Arnljótur Sigurðsson) spilar fyrir gesti frá kl. 21 til miðnættis.

KJARVALSSTAÐIR / Flókagata 24, 105 Reykjavík

Kl. 19-24

Viltu vita meira um sýninguna?

Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur

Starfsfólk frá fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur verður á staðnum og fræðir gesti um sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur sem opnaði í dag á Kjarvalsstöðum.

Kl. 21

Tónleikar: Tríó Reykjavíkur

Guðný Guðmundsdóttir og Richard Simm flytja nokkrar af perlum fiðlubókmenntanna. Á verkalistanum eru Rómanza Beethovens, Introduction og Rondo Capriccioso eftir Saint-Saëns, Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Jón Nordal hinn sívinsæla Csárdás eftir Monti.

Kl. 22-24

DJ api pabbi

Plötusnúðurinn api pabbi (Pétur Eggertsson) spilar fyrir gesti frá kl. 22 til miðnættis.

The post Skapaðu þitt eigið listaverk á Safnanótt! appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356