Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

OPNUNARTÍMAR OG VIÐBURÐIR YFIR HÁTÍÐARNAR Í LISTASAFNI ÍSLANDS

$
0
0

OPNUNARTÍMAR OG VIÐBURÐIR YFIR HÁTÍÐARNAR Í LISTASAFNI ÍSLANDS | Fréttir | Fræðsla | Listasafn Íslands

OPNUNARTÍMAR OG VIÐBURÐIR YFIR HÁTÍÐARNAR Í LISTASAFNI ÍSLANDS

Sunnudaginn 27. desember verða tvær leiðsagnir í Listasafni Íslands á ensku. Kl. 14 mun Björg Erlingsdóttir leiða gesti um sýninguna Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp og kl. 15:30 verður Hrafnhildur Schram, sýningarstjóri, með leiðsögn um sýninguna Nína Sæmundsson – Listin á hvörfum. Auk þess, kl. 14 sama dag, verður Ólafur Ingi Jónsson annar sýningarstjóra sýningarinnar Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp með leiðsögn um sýninguna á íslensku.

Sunnudaginn 3. janúar kl. 14 býður Listasafn Íslands gestum að hlýða á Hallgrím Oddsson, blaðamann, kynna rannsókn sína á því þegar Nínu Tryggvadóttur var synjað um landvistarleyfi í Bandaríkjunum vegna meintra tengsla við kommúnista á Íslandi.
Sama dag kl. 15:30 mun Dr. Ásdís Ólafsdóttir, listfræðingur og einn höfunda bókarinnar um Nínu Tryggvadóttur, leiða gesti um sýninguna Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp.

nánar

OPIÐ:
Þorláksmessa 23. des.
Sunnudaginn 27. des.
Þriðjudaginn 29. des.
Miðvikudaginn. 30. des.
Laugardaginn. 2. jan
Sunnudaginn. 3. jan.

LOKAÐ:
Aðfangadagur 24. des.
Jóladag 25. des.
Annan í jólum 26. des.
Gamlársdag 31. des.
Nýjársdag 1. jan.

The post OPNUNARTÍMAR OG VIÐBURÐIR YFIR HÁTÍÐARNAR Í LISTASAFNI ÍSLANDS appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356