Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Listasafninu, Ketilhúsi – Konur í íslenskri myndlist

$
0
0

Þriðjudaginn 8. desember kl. 17 heldur Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi Listasafnsins á Akureyri og Myndlistarkona, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Konur í íslenskri myndlist.

Fjallað verður í máli og myndum um konur í íslenskri myndlist, þekkt verk skoðuð og sett í sögulegt samhengi. Einnig verður fjallað um bók Hrafnhildar Schram, Huldukonur í íslenskri myndlist, sýningu Listasafns Íslands, Íslands konur stíga fram, sem og valdar myndlistarkonur sem fæddar eru á árunum 1940-1990.

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir nam myndlist og málvísindi í Gautaborg og hélt svo til frekara náms í Hollandi, fyrst í AKI Akademie voor Beeldende Kunst en Industrie í Enschede og síðar í framhaldsnám í Jan van Eyck Akademie í Maastricht og útskrifaðist þaðan 1989. Guðrún Pálína hefur verið búsett á Akureyri síðan 1991, unnið þar að eigin myndlist, staðið fyrir sýningarhaldi og viðburðum og fengist við kennslu. Hún er í hálfri stöðu fræðslufulltrúa við Listasafnið á Akureyri.

Fyrirlesturinn er sá tíundi í röð fyrirlestra sem haldnir eru á hverjum þriðjudegi í Listasafninu, Ketilhúsi í allan vetur. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Þetta er síðasti Þriðjudagsfyrirlesturinn á árinu en næst heldur Gudrun Bruckel, myndlistarkona, fyrirlestur þann 19. janúar næstkomandi.

The post Listasafninu, Ketilhúsi – Konur í íslenskri myndlist appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356