Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Málverkasýning Elínar Þ. Rafnsdóttur í Listhúsi Ófeigs

$
0
0

SÝNING Á NÝJUM OLÍUMÁLVERKUM ELÍNAR RAFNSDÓTTUR

Laugardaginn 20. mars kl. 13.00 – 17.00 2021 opnar Elín Rafnsdóttir málverkasýningu í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5,  sem ber yfirskriftina SAKNA.

Sýningin er opin daglega á opnunartíma verslunarinnar og stendur til 21. apríl 2021.

Minnum á sóttvarnir og allir velkomnir.

Elín Rafnsdóttir segir um sýninguna.

„Verkin  eru unnin þannig að ég byrja að setja lit á tóman strigann eftir því hvernig mér líður þann daginn. Síðan koma upp myndir í huganum af einhverju sem ég veit aldrei fyrirfram hvað verður. Oftast eru þetta minningarbrot úr gönguferðum og söknuður.  Undir lokin hefur myndin yfirleitt tekið miklum breytingum frá upphafinu og oft tekið óvænta stefnu. Hver mynd er óvissuferð þegar ég byrja og öðlast svo smá saman sitt sjálfstæða líf.¨

Öll verkin á sýningunni eru olía á striga

Elín hefur í málverkum sínum unnið með expressioniskar málunaraðferðir í bland við teikningu. Verk hennar byggjast á náttúruupplifunum og eru persónuleg úrvinnsla úr umhverfi hennar og lífi.

Elín hefur haldið  einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér á Íslandi og erlendis. Hún nam skúlptúr við Royal Danish Academy og útskrifaðist með MFA frá University of New Paltz NY í skúlptúr og grafík.

The post Málverkasýning Elínar Þ. Rafnsdóttur í Listhúsi Ófeigs appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356