Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Menningarhúsið Hof: Leiðir – Joris Rademaker

$
0
0

LEIÐIR – JORIS RADEMAKER

Myndlistarmaðurinn Joris Rademaker opnaði myndlistarsýningu sína Leiðir í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 6. mars sl.

Joris lauk kennaranámi í Tilburg í Hollandi árið 1983 og myndlistarnámi í AKI, Enschede, Hollandi árið 1986. Hann hefur haldið sýningar á ýmsum stöðum á Íslandi eins og í Listasafni Akureyrar, Nýlistasafninu í Reykjavík, Gallerí Skugga, Safnasafninu á Svalbarðsströnd, Grafíksalnum, Safnahúsinu á Húsavík, Mjólkurbúðinni og Pálshúsi á Ólafsfirði. Eins hélt hann einkasýningar í Studiogalerie í Berlín og Den Bosch í Hollandi og samsýninguna From Iceland í Schijndel í Hollandi.

Joris var valinn Bæjarlistamaður Akureyrar árið 2006 og hlaut starfslaun myndlistarmanna árið 2014. Joris segir setninguna „lost in space“ hafa fylgt honum í listsköpuninni. “Flest mín verk fjalla um rými, orku og tímann, sem við notum til að finna leiðir til að upplifa einhvern tilgang. Náttúran er minn helsti innblástur og abstrakt myndlist er aðferðin til að gera orkuna og hreyfingu í náttúrunni sýnilega. Að nota kartöflur í staðinn fyrir hringform býður upp á meiri fjölbreytni, hreyfingu og orku á myndfletinum. Kartaflan hefur verið og er enn grunnfæða fjölda fólks. Útlit hennar er einhverskonar grunnform. Hún er notuð sem efniviður í mörgum listaverkum og býður í raun upp á endalausa möguleika.”

Þau verk sem sýnd eru í Hofi má skipta í tvo hópa:

Hvítu akrýlmálverkin eru eldri, en helmingur þeirra eru nýlega kláruð og í þeim fær mynduppbyggingin mesta athygli.

Svörtu gvass myndirnar eru nýjar og fjalla um birtu úr myrkrinu, þar sem hringlaga form dúkkar upp.

Sýningin er opin á opnunartíma Hofs og stendur til 11.apríl 2021

The post Menningarhúsið Hof: Leiðir – Joris Rademaker appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356