Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Listasafni Reykjanesbæjar – Konur og kynvitund

$
0
0

Leiðsögn um KVENNAVELDIÐ: Konur og kynvitund, í Listasafni Reykjanesbæjar
Sunnudaginn 29. nóvember kl. 15:00 verður Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri og listfræðingur með leiðsögn um sýningu Listasafns Reykjanesbæjar, KVENNAVELDIÐ: Konur og kynvitund, sem opnuð var 13. nóvember sl. Með honum verða úr hópi sýnenda þær Guðrún Tryggvadóttir og Louise Harris og mögulega fleiri.

Á sýningunni er að finna verk eftir tólf listakonur, Doddu Maggý, Guðnýju Kristmanns, Guðrúnu Tryggvadóttur, Hlaðgerði Íris, Huldu Vilhjálmsdóttur, Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, Kristínu Gunnlaugsdóttur, Louise Harris, Magdalenu Margréti Kjartansdóttur, Rósku, Valgerði Guðlaugsdóttur og Þórdísi Aðalsteinsdóttur.

Leiðarstef sýningarinnar er að finna í texta sem bandaríska skáldkonan Joan Didion skrifaði um konur og femínisma, nefnilega: „Hvað það er að vera kona, ósættanlegar andstæðurnar sem í því felast – hvernig það er að lifa dýpsta vitundarlífi sínu líkt og neðansjávar, við dimman nið blóðs, barnsburða og dauða“. Í þessum texta deilir rithöfundurinn einnig á bandarískan femínisma, sem hún taldi gera lítið úr girnd, myrku ímyndunarafli og líkamlega tengdum áhyggjum þroskaðra nútímakvenna.

Um listakonurnar á sýningunni segir í sýningarskrá: „(Þær) fara ekki í felur með langanir sínar og ímyndanir. Þær segja frá tilurð kynhvatar og kynþroska, opna meira að segja fyrir eldfima umræðuna um kynþokka barna, upphefja áður „óumræðanleg“ fyrirbæri á borð við sköp og fýsn kvenna, flétta saman eigin líffræði, táknfræði og sagnfræði…Áhorfandinn fær á tilfinninguna að í hispursleysi sínu séu myndlistarkonur komnar lengra í tilfinningaþroska en karlkyns starfsbræður þeirra, sjálfskipaðir umsjónarmenn stórra sanninda.“

Í sýningarskrá er einnig að finna ritgerð eftir Sigríði Þorgeirsdóttur, prófessor í heimspeki, sem ber heitið „Meiri spennu og minna stríð milli kynjanna“. Þar deilir hún m.a. á peningahagkerfi nútímans, sem „á upptök sín í hlutgervingu kvenna og meinar þeim á margan hátt að vera þær sjálfar.“

Sýningin í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum stendur til 24. janúar 2016 og er opin frá 12.00-17.00 alla daga.

The post Listasafni Reykjanesbæjar – Konur og kynvitund appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356