Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Listasafn Íslands: Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp, sunnudaginn 22. nóvember

$
0
0

Sunnudagsleiðsögn: Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp, sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.

Garðar Ólafsson, bróðursonur Nínu Tryggvadóttur tekur þátt í leiðsögn um sýninguna Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp og rifjar upp kynni sín af föðursystur sinni.

Nína var flest sumur á Íslandi og sótti sér innblástur og orku í íslenska náttúru. Una Dóra, dóttir Nínu, fylgdi henni heim til Íslands þar sem ættingjar og vinir biðu þeirra mæðgna og góðar minningar sem ættingjar Nínu eiga frá þessum heimsóknum.
Á sýningunni, Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp, er merkum listferli Nínu Tryggvadóttur (1913–1968) gerð góð skil með fjölda listaverka hennar og útgáfu. Verk Nínu Tryggvadóttur í safneign Listasafns Íslands eru 80 talsins, frá árabilinu 1938–1967, en auk valdra verka úr safneign verða sýnd lánsverk víða að, sem sjaldan eru sýnd, og valin verk í eigu Unu Dóru Copley, einkadóttur listamannsins, sem hafa mörg hver ekki áður verið sýnd á Íslandi.

The post Listasafn Íslands: Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp, sunnudaginn 22. nóvember appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356