Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

“VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM” í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, föstudaginn 20. nóvember, kl.16:00 – 17:00.

$
0
0

VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM

Velkomin á baráttufund SÍM – Sambands íslenskra myndlistarmanna

föstudaginn 20. nóvember kl. 16:00 – 17:00

 

Tilgangur herferðarinnar „ VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM“ er að efla starfsvettvang myndlistarinnar og bæta kjör og stöðu myndlistarmanna.

Þungamiðja herferðarinnar er að kynna samning um þátttöku og framlag listamanna til sýningarhalds í opinberum listasöfnum og öðrum sýningarsölum sem fjármagnaðar eru af opinberum aðilum, að hluta eða öllu leyti.

SÍM hefur sett af stað tvíþætta undirskriftasöfnun, þar sem niðurskurði á Myndlistarsjóði og Listskreytingasjóði er mótmælt harðlega, en þessir sjóðir eruafar mikilvægir fyrir störf myndlistarmanna og listfræðinga.

Skorað er á Alþingi að sýna stórhug og framsýni í verki með því að styrkja þessa mikilvægu sjóði og veita 52 milljónum króna til Myndlistarsjóðs og 10 milljónum króna í Listskreytingasjóð, fyrir árið 2016.

Hægt er að skrifa undir hér fram til 20. nóvember, kl. 12:00. 

Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, mun afhenda Vigdísi Hauksdóttur, formanni fjárlaganefndar, undirskriftalistann á fundinum.

 

Dagskrá:

 

16:00 Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, flytur ávarp og opnar formlega heimasíðuna, www.vidborgummyndlistarmonnum.info.

16:10 Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, heldur erindi.

16:20 Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistamaður og stjórnarmaður í Myndlistarráði, heldur erindi.

16:30 Ástríður Eggertsdóttir, arkitekt og stjórnarmaður í Listskreytingasjóði,  heldur erindi

16:40 Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, afhendir Vigdísi Hauksdóttur, formanni fjárlaganefndar, undirskriftalistann frá SÍM

16:50 Steinunn Eldflaug, flytur hljóðverk úr geimnum.

 

Allir hjartanlega velkomnir!

 

The post “VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM” í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, föstudaginn 20. nóvember, kl.16:00 – 17:00. appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356