Við bendum á áhugaverðan fyrirlestur Jóns Guðmundssonar, plöntulífeðlisfræðings sem haldinn verður í Borgarbókasafninu í Árbæ næstkomandi mánudag.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Grisjunarviður úr görðum. Hráefni í nytjalist og fjallar um hvaða við úr trjám sem ræktuð eru í görðum, má nýta í handverk og nytjalist. Einnig fjallar Jón um hverskonar smíði eða úrskurð þær henta best, hvar bestu bútana er að finna, fyrstu skrefin í nýtingu og svo nefnd dæmi um afurðir. Sjá viðburðinn hér.

Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ
Mánudaginn 8. júní kl. 17.00
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Guðmundsson, plöntulífeðlisfræðingur
formaður Félags trérennismiða á Íslandi
Sími 699 1499
Jónína Óskarsdóttir
deildarbókavörður Borgarbókasafninu í Árbæ
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is
Sími 411 6250

The post Borgarbókasafn: Grisjunarviður úr görðum sem hráefni í nytjalist appeared first on sím.