Sunnudagsleiðsögn með Ólafi Inga Jónssyni, 15. nóvember kl. 14.
Ólafur Ingi Jónsson, annar sýningarstjóra sýningarinnar Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp, og deildarstjóri forvörsludeildar Listasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna sunnudaginn 15. nóvember kl. 14.
Á sýningunni, Nína Tryggvadóttir – Ljóðvarp, er merkum listferli Nínu Tryggvadóttur (1913–1968) gerð góð skil með fjölda listaverka hennar og útgáfu. Verk Nínu Tryggvadóttur í safneign Listasafns Íslands eru 80 talsins, frá árabilinu 1938–1967, en auk valdra verka úr safneign verða sýnd lánsverk víða að, sem sjaldan eru sýnd, og valin verk í eigu Unu Dóru Copley, einkadóttur listamannsins, sem hafa mörg hver ekki áður verið sýnd á Íslandi.
The post Ljóðvarp – Nína Tryggvadóttir: Sunnudagsleiðsögn með Ólafi Inga Jónssyni, 15. nóvember appeared first on sím.