Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Listasafn Reykjavíkur: Gjörningur í D-sal Hafnarhúss, mánudaga og föstudaga kl. 14.30 og 15.20

$
0
0

Næstkomandi mánudaga og föstudaga kl. 14.30-15.00 og 15.20-15.50 mun fara fram gjörningur sem er hluti af sýningu Andreas Brunner, Ekki brotlent enn. Tímasetningin er ekki úr lausu lofti gripin en samkvæmt Google eru flestir gestir inni í Listasafni Reykjavíkur á þessum tíma og því valdi Brunner þann tíma.

Gjörningurinn felur í sér að tveir aðilar mála súlu í salnum hvor í sínum lit. Málararnir, sem færa sig rangsælis um súluna, sjá ekki hvorn annan og munu því í sífellu mála yfir hvor hjá öðrum. Hringrásin verður endalaus svo lengi sem sýningin er opin. Sýningin stendur til sunnudags 7. júní 2020.

Frítt er inn í öll safnhús Listasafns Reykjavíkur til sunnudagsins 10. maí. Safnið fer eftir tilmælum um fjöldatakmarkanir og tveggja metra fjarlægðarreglan gildir.

Gjörningur í D sal Hafnarhúss. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir

The post Listasafn Reykjavíkur: Gjörningur í D-sal Hafnarhúss, mánudaga og föstudaga kl. 14.30 og 15.20 appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356