Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Hönnunarsjóður: Opnað fyrir úthlutun 50 milljóna til átaksverkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs

$
0
0

Opnað fyrir úthlutun 50 milljóna til átaksverkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs

Hönnunarsjóði hefur verið falið að úthluta 50 milljónum til átaksverkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs, samkvæmt þingsályktun um tímabundið
fjárfestingarátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar
heimsfaraldurs vegna Covid-19. 


Veittir verða styrkir til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs og lögð áhersla á verkefni til þróunar, nýsköpunar, menningarlífs og atvinnusköpunar, gjarnan með þverfaglegri nálgun. Markmið og úthlutunarreglur Hönnunarsjóðs
gilda við úthlutunina, en tekið verður tillit til aðstæðna vegna Covid-19.
 
Skilyrði styrkveitingar samkvæmt þingsályktun:

  • Verkefnið hefjist eigi síðar en 1. september 2020 og ljúki fyrir 1. apríl 2021.
  • Átaksverkefni sem styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði lista og menningar með áherslu á sköpun og virka þátttöku listamanna í menningarlífi landsmanna.
  • Verkefni uppfylli grunnmarkmið fjárfestingarátaks um að styðja við eftirspurn og atvinnu til skamms tíma með arðbærum verkefnum.
  • Sýnt sé fram á gildi verkefnis og mikilvægi þess fyrir landsmenn.
  • Styrkveiting sé til undirbúnings, þróunar og framkvæmd verkefnis.
  • Lagðar séu fram ítarlegar upplýsingar um verkefnið auk tímaáætlunar.

Úthlutunin hefur ekki áhrif á aðrar úthlutanir úr Hönnunarsjóði 2020.

Umsóknarfrestur rennur út 18. maí og úthlutun er áætluð 29. maí 2020.

Nánari upplýsingar og umsóknir má finna á heimasíðu Hönnunarsjóðs hér.

The post Hönnunarsjóður: Opnað fyrir úthlutun 50 milljóna til átaksverkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356