Fyrir hverja?
Starfandi listamenn, list- og menningartengdar stofnanir, félagasamtök og aðra þá er sinna menningarstarfi fyrir börn og ungmenni í samræmi við opinbera menningarstefnu. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.
Til hvers?
Barnamenningarsjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum næstu fimm ár, 2019–2023, 100 millj. kr. á ári. Er því um opinbert átaksverkefni að ræða, sem gert er ráð fyrir að skjóti styrkari stoðum undir fjölbreytt menningarstarf í þágu barna og ungmenna til framtíðar.
Umsóknarfrestur
Einu sinni á ári, næst 1. apríl 2020, kl. 16:00.
Umsóknarkerfi opnar að jafnaði sex vikum fyrir umsóknarfrest.
Nánari upplýsingar hér: rannis.is

The post Barnamenningarsjóður – opið fyrir umsóknir appeared first on sím.