Verið velkomin á opnun sýningarinnar HÖRUND 13. nóvember
kl. 17:00- 19:00 í Norræna húsinu.
,, allir eru einhvern veginn, þetta er minn raunveruleiki, minn heimur“.
Edda Heiðrún Backman
Viðfangsefni Eddu Heiðrúnar Backman á sýningunni HÖRUND eru líkamar. Þar má vissulega finna hefðbundnar fyrirsætur með báðar fætur jafnlangar, en líka flóru alls kyns líkama, marga býsna óvenjulega. Sumir eru sárir og bera ör, á einhverja vantar líkamspart, aðrir hafa fengið vængstúfa í stað útlima. Allt eru þetta fallegir líkamar.
Sýningin verður í Norræna húsinu frá.
The post Opnun á sýningunni HÖRUND eftir Eddu Heiðrúnu Backman 13.-29. Nóvember appeared first on sím.