Myndlistarráð
býður þér til málþings og afhendingar
Íslensku myndlistarverðlaunanna 2020 þann 20. febrúar í Iðnó
DAGSKRÁ :
Málþing : Íslensk myndlistarstefna, IÐNÓ, kl. 18:00 – 19:00
Stutt erindi um mikilvægi setningar íslenskrar myndlistarstefnu og
pallborðsumræður með fyrirlesurum
Með framsögu á málþinginu fara :
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Helgi Þorgils Friðjónsson, formaður myndlistarráðs
Anna Eyjólfsdóttir, formaður SÍM
Páll Haukur Björnsson, myndlistarmaður
Fundarstjóri er Guðrún Sóley Gestsdóttir
Afhending : Íslensku myndlistarverðlaunin 2020, IÐNÓ, kl. 20:00
Afhending verðlaunanna hefst kl. 20:00 og boðið verður upp á
létta tóna og veitingar yfir fordrykk frá kl. 19:30.
Húsið opnar kl. 19:00
Myndlistarmenn sem tilnefndir eru sem Myndlistarmaður ársins eru:
Anna Guðjónsdóttir fyrir Hluti í stað heildar í Listasafni Reykjavíkur
Guðjón Ketilsson fyrir Teikn í Listasafni Reykjanesbæjar
Hildigunnur Birgisdóttir fyrir Universal Sugar í Listasafni ASÍ
Ragnar Kjartansson fyrir Figures in Landscape í i8
Myndlistarmenn sem tilnefndir eru til Hvatningarverðlauna ársins eru:
Claire Paugam
Emma Heiðarsdóttir
Sigurður Ámundason
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna hér :
https://www.facebook.com/events/636703760396746/
Vonumst til að sjá sem flesta,
með góðri kveðju,
Myndlistarráð

The post Málþing og afhending Íslensku myndlistarverðlaunanna 2020 appeared first on sím.