Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Einkasýning Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur: “Ég hef misst sjónar af þér” opnar í Neskirkju

$
0
0

Einkasýning Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur: “Ég hef misst sjónar af þér” opnar í Neskirkju, þann 10. nóvember 2019 í messu kl. 11:00.

Sunnudaginn 10. nóvember kl. 12 opnar einkasýning Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur Ég hef misst sjónar af þér í Safnaðarheimili Neskirkju. Hluti sýningarinnar teygir anga sína yfir til gömlu Loftskeytastöðvarinnar á Brynjólfsgötu, þar sem eitt verkanna er sýnt á þakkanti hússins.

Á sýningunni gerir Anna Júlía samband manns og náttúru að viðfangsefni sínu og sækir efnivið í andstæða póla; annarsvegar í hinn tilbúna, manngerða heim, og hinsvegar í náttúrulegt lífríki sjávar. Sýningin ber með sér áríðandi en þögul skilaboð um stöðu sjávarspendýra á válista og vekur til umhugsunar þá firringu eða fjarlægð sem orðið hefur milli manns og náttúru. Verkin byggja á Morse-kóða, sem notaður er í alþjóðlega stöðluð kallmerki, og birtist m.a. í ljósaseríum í gluggum og utanhúss. Þannig seilist sýningin út í almannarýmið og tengir saman tvær opinberar stofnanir í næsta nágrenni við hvor aðra: Safnaðarheimili Neskirkju (miðstöð hins andlega), og Náttúruminjasafn Íslands (varðveislustofnun hins náttúrulega). 

Sýningin er gerð í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands og styrkt af Myndlistarsjóði  

The post Einkasýning Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur: “Ég hef misst sjónar af þér” opnar í Neskirkju appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356