Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ
Miðvikudagarnir:, 6. nóvember og 4. desember kl. 16-17.30
Teiknismiðjan er fyrir alla sem vilja spreyta sig í teikningu. Ekki er um námskeið að ræða heldur geta áhugasamir mætt og teiknað saman þó hver og einn vinni að sínu. Kristin Arngrímsdóttir myndlistarmaður og starfsmaður bókasafnsins verður þátttakendum innan handar og getur útvegað verkefni sem hægt er að prófa sig áfram með.
Teiknismiðjan verður fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði í vetur.
Ekki er krafist undirbúnings eða kunnáttu og allir velkomnir sem hafa áhuga.
Þátttakendur geta haft með sér áhöld og pappír en eitthvað efni verður þó á staðnum. Ókeypis þátttaka

The post Teiknismiðja á Borgarbókasafninu í Árbæ appeared first on sím.