Arthur Ragnarsson heldur málverkasýningu á vegum Helsinki, höfuðborgar Finnlands. Sýningin NAUTILUS verður opnuð þann 16. nóvember í Menningarmiðstöð Vuotalo í Helsinki. Þetta er önnur sýning listamannsins í Finnlandi þar sem hann hefur starfað undanfarið og kynnt sér forna söguheima og Samíska fjölkyngi. Sýningin er jafnframt opnunarviðburður ársins 2020 í Menningarmiðstöð Vuotalo þar sem hafið er meginþemað.

Nafn sýningarinnar er fengið að láni úr Sæfaranum, skáldsögu Jules Verne frá 1870. Efni sýningarinnar er ljóðrænn eiginleiki skáldsögunnar og stórbrotnar lýsingar á hinum ýmsu tegundum í lífríki hafsins þar sem þær líða hjá gluggum kafbátsins í djúpum heimshafanna. Skipstjórinn Númi lýsir nútímalegum viðhorfum sínum til náttúruverndar og þörfinni fyrir friðun lífríkis í útrýmingarhættu. Rétt eins og þegar kafbáturinn Nautilus uppgötvar auðlegð neðansjávarheimanna, tekur sýningin dýfu inn í veröld hugarflugsins.
Arthur Ragnarsson er frá Siglufirði og hefur starfað lengst af í Svíþjóð. Listrænn heimur Arthurs á sér upptök í hans eigin ímyndunarafli og dulvitund. Í heimi sem er tengdur fortíðinni, þjóðsögum, hjátrú og reynslu hans sem sjómaður á norðurhjara veraldar býr hann til heimkynni drauga og norna þar sem galdrar og kukl ráða ríkjum. Náttúran er meginmáttur myndefnisins auk hins dulræna sem tengiliður náttúrunnar og samfélags manna. Listamaðurinn kannar mikilvægi arfleifðar menningarsögu í veruleika nútímans og finnur að veröldin er mun stærri og undarlegri en við getum ímyndað okkur.

The post Arthur Ragnarsson sýnir í Helsinki appeared first on sím.