Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Lily Adamsdóttir opnar sýninguna sína Skrúður í SÍM salnum, Hafnarstræti 16, föstudaginn 9.ágúst kl. 17-19

$
0
0

Lilý Erla Adamsdóttir sýnir ný verk á sýningu sinni Skrúður í Sím salnum, Hafnarstræti 16.

Í óhlutbundnum verkum skapar Lilý samtal milli lita og áferðar. Hún dregur fram heillandi heim þar sem hæðir og lægðir takast á og mynda kraftmikinn hrynjanda á yfirborðinu. Hún skoðar yfirborð hversdagsins og sækir innblástur jafnt í marmarakökur sem og jökulhlaup. Verkin ásýningunni eru loðin málverk.

Lilý lauk BA prófi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2011. Diplóma í Textíl við Myndlistaskólann í Reykjavík árið 2014 og MA í listrænum textíl við The Swedish School of Textiles, í Borås í Svíþjóð 2017.

Í listsköpun sinni hefur hún fengist við textíl, málverk, skúlptúr, ljóðlist og gjörninga. Hún hefur sýnt og kennt textíl og myndlist bæði hér heima og erlendis. Lilý er deildarstjóri textíldeildar Myndlistaskólans í Reykjavík og situr sem formaður í stjórn Textílfélags Íslands.

Velkomin á opnun þann 9. ágúst frá 17-19. Sýningin verður opin á skrifstofutíma SÍM milli 10-16 alla virka daga.

Facebook viðburður

The post Lily Adamsdóttir opnar sýninguna sína Skrúður í SÍM salnum, Hafnarstræti 16, föstudaginn 9.ágúst kl. 17-19 appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356