Sunnudagur til sælu er yfirskrift sunnudagsins 9. júní á Árbæjarsafni en þá býðst gestum að upplifa ferðalag aftur í tímann.
Starfsfólk klæðist fatnaði sem tíðkaðist á 19. öld og sinnir ýmsum störfum sem nauðsynleg eru á hverjum bæ. Húsfreyjan í Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur og á baðstofuloftinu situr kona við tóskap. Í haga er að finna hesta, kindur og lömb og í Dillonshúsi verður heitt á könnunni og heimilislegar veitingar.

Dagskráin hefst kl.13 og stendur til kl.16.
Ókeypis aðgangur fyrir börn, eldri borgara, öryrkja og menningarkortshafa.
Árbæjarsafn er opið í allt sumar frá klukkan 10-17
The post Sunnudagur til sælu í Árbæjarsafni appeared first on sím.