Fimmtudaginn 28. Febrúar er lokasýningin á Um hvað syngjum við eftir belgíska danshöfundinn Pieter Ampe í samvinnu við dansara Íd.
Íslenski dansflokkurinn vill bjóða félagsmönnum SÍM miðann á þessa líflegu sýningu á aðeins 4.000 kr. Almennt miðaverð á sýninguna er 5.900 kr.
Hægt er að kaupa miða HÉR með 32% afslætti.
Um hvað syngjum við hefur fengið glimrandi dóma í fjölmiðlum og eru allir sammála um að þetta sé sýning sem fólk, og þá sérstaklega ungt fólk, ætti að sjá.
“Ég held að þetta sé geggjuð sýning fyrir unglinga og fyrir alla sem eru kannski að taka sín fyrstu skref að vita meira um dans [..] gefur auðveldan aðgang að því sem þau [dansflokkurinn] eru að gera” – Kristína Aðalsteinsdóttir í Lestarklefanum á RÚV
“Mér fannst þessi sýning alveg gjörsamlega stórkostleg og er búin að velta henni mikið fyrir mér eftir hana [..] Maður sér inní fólkið, dansarana. […] Þau eru að tala um öll jaðarmálin í samfélaginu í þessari sýningu. Litla stelpan inni í mér fannst ógeðslega gaman á sýningunni. Ég var alveg svona fremst á sætinu og þurfti að loka augunum, fékk sorgarsvip. Fannst þetta vera allur skalinn […] Þetta var inspirerandi og skemmtilegt” – Fríða Rós Valdimarsdóttir í Lestarklefanum á RÚV
“Um hvað syngjum við er áhugavert verk sem tekst á við málefni sem kemur okkur öllum við. Það er mjög líkamlegt og krefst mikils hraða og styrks af dönsurunum [..] Ég mæli því með að fólk fari í Borgarleikhúsið og sjái um hvað Íslenski dansflokkurinn syngur þessa febrúardaga.” - Sesselja G. Magnúsdóttir í Menningunni á RÚV
Um sýninguna Um hvað syngjum við
Belgíski danshöfundurinn Pieter Ampe elskar að liggja nakinn í snjónum, dansa í villtum partýum og syngja undir stýri. Og tilhugsunin um björn sem jogglar eplum á einhjóli er fyndin. Þykir sumum. Öðrum finnst hún sorgleg.
Að vetri til, í myrkri og drungalegu veðri, lítur fólk einmitt inn á við. Fleygir sér ekki bara allsbert í snjóinn og fer í partí eða keyrir fram og tilbaka í bíl. Það veit Pieter. Nú hefur hann hitt dansara Íslenska dansflokksins, þau Elínu, Andrean, Tilly, Charmene, Felix, Shota, Ernu og Unu. Sum þeirra eru frá Íslandi, önnur eru lengra að komin, en öll nota þau tækifærið til að líta í eigin barm og spyrja sig spurninga. Þau skiptast á spurningum, þau dansa þær og syngja. Því þau hafa öll sögu að segja. Og hvað er fallegra en að syngja saman á meðan niðadimm nóttin líður hjá?
Kíktu á http://www.id.is eða á facebook síðu flokksins fyrir frekari upplýsingar um sýninguna. Einnig er hægt er að hafa samband við Írisi hjá Íd (iris@id.is).
Við vonumst til að sjá sem flesta frá SÍM á Íslenska dansflokknum á fimmtudaginn.
The post Tilboð til félagsmanna SÍM á “Um hvað syngjum við” appeared first on sím.