Opnunarhóf – Gallerí Kænuvogur
HVAÐ: Opnun á nýju listagalleríi Gallerí Kænuvogur í Vogabyggð
HVENÆR: Föstudaginn 16. Október 2015
HVAR: Súðarvogur 48 – Kænuvogsmegin
Myndlistarmaðurinn Elli (Erlingur Valgarðsson) opnar á föstudaginn næstkomandi splunkunýtt listagallerí, Gallerí Kænuvogur í hjarta “Soho Reykjavíkur”, en Vogabyggð er sem stendur eitt af lykil uppbyggingarsvæðum borgarinnar.
Opnunarsýningin nefnist Vogandi þar sem sýningarstjóri hefur sett upp áhugaverða samsýningu ólíkra listamanna.
Myndlistarmennirnir sem taka þátt eru:
Elva Hreiðarsdóttir, Gunnar Kr. Jónasson, Sólveig Hólmarsdóttir, Æja, Ninný, Guðbrandur Ægir, Edda Þórey Kristfinnsdóttir, Elli, María Kjartans, Þóra Björk Schram og Aðalsteinn Svanur.
Boðið verður uppá léttar veitingar og lifandi tónlist, en tónlistarmennirnir
Biggi Hilmars og Aðalsteinn Svanur munu flytja nokkur lög.
Sýningin stendur til 18. Október.
Allir velkomnir