Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að sýningu í Hafnarborg haustið 2019. Sýningin Allra veðra von var valin úr athyglisverðum tillögum sem sendar voru inn á síðasta ári. Markmiðið með því að óska eftir innsendum tillögum er að fá tækifæri til að velja til samstarfs sýningarstjóra sem leggur fram áhugaverða tillögu að sýningu en jafnframt að kalla til leiks nýtt fólk. Þannig er sérstaklega hugað að því að veita tækifæri sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Það hefur sýnt sig að fyllsta ástæða er til að halda úti slíku verkefni, en út frá því hafa orðið til fjölbreyttar og áhugaverðar sýningar sem vakið hafa athygli og verið vel sóttar.
Frestur til að skila inn tillögum hefur verið framlengdur um eina viku og rennur út sunnudaginn 25. nóvember 2018.
Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja verk listamanna en einnig koma til greina sýningar sem fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns. Jafnt koma til greina sýningar á verkum samtímalistamanna og sýningar sem fela í sér sögulega greiningu.
Umsóknarferlið er tvískipt og eru þeir sem áhuga hafa á að takast á við þetta verkefni hvattir til að kynna sér verkefnið frekar hér.
Árið 2011 hóf haustsýningaröðin göngu sína með sýningunni Í bili sem unnin var af Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mannfræðingi, 2012 var sett upp sýningin SKIA í sýningarstjórn Guðna Tómassonar listsagnfræðings og Anna María Bogadóttir menningarfræðingur og arkitekt vann sýninguna Vísar – húsin í húsinu árið 2013. Á árinu 2014 var hugmynd Helgu Þórsdóttur, menningarfræðings og myndlistarmanns, að sýningunni Rás valin úr áhugaverðum tillögum. Haustið 2015 voru það listfræðingarnir Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir með sýninguna Heimurinn án okkar. Á síðasta ári, 2016, var tillaga hönnunartvíeykisins TOS fyrir valinu en TOS er skipað þeim Hildi Steinþórsdóttur og Rúnu Thors með sýninguna Tilraun – leir og fleira. 2017 var tillaga Jóhannesar Dagssonar listheimspekings Málverk – ekki miðill fyrir valinu og í ár var það sýningina Allra veðra von, tillaga Mörtu Sigríðar Pétursdóttur, menningar- og kynjafræðings, sem fjallaði um samband mannsins við veður.
Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir þannig að safnið verði vettvangur þar sem myndlist fær notið sín, mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Sýningarnar og málþing sem skipulögð hafa verið samhliða þeim hafa skapað markverðan vettvang umræðna og þróunar í Hafnarborg.
Sendið tillögur á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is
Merkið póstinn Haust2019.
Nánari upplýsingar í síma Hafnarborgar 585 5790 og á heimasíðu safnsins www.hafnarborg.is
The post Haustsýning Hafnarborgar 2019 – Kallað eftir tillögum – Umsóknarfrestur framlengdur appeared first on sím.