Kynningarkvöld: Landvernd og Ferðaklúbburinn 4×4
|
Kynningarkvöld með Landvernd og Ferðaklúbbnum 4×4 í tengslum við sýninguna Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? sem stendur nú yfir í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum. Ókeypis aðgangur. Um Landvernd Samtökin líta svo á að náttúru- og umhverfisvernd, sem og endurreisn spilltra náttúrugæða, séu forsenda efnahagslegrar og samfélagslegrar velferðar til lengri tíma litið. Þau hvetja til sjálfbærrar umgengni þjóðarinnar við náttúruna heima við og á hnattræna vísu, sem byggir á öflugri umhverfisvitund, þekkingu og verndarvilja. Innan Landverndar eru 40 aðildarfélög um allt land en auk þess eru rúmlega 5000 manns skráðir sem einstaklingsfélagar. Samtökin reka fjölmörg fræðsluverkefni en þar ber hæst Grænfánann, Bláfánann, landgræðsluverkefni með skólum á Suðurlandi, verkefni um náttúruvernd á jarðhitasvæðum o.fl. Samtökin voru stofnuð 1969. Páll Ásgeir Ásgeirsson, stjórnarmaður í Landvernd, mun sýna ljósmyndir og tala um upplifun fólks af náttúru og útivist á okkar tímum og stöðu náttúruverndar og þar verður lýst starfi Landverndar. Um Ferðaklúbbinn 4×4 Markmið Ferðaklúbbsins 4×4:
|
The post Kynningarkvöld: Landvernd og Ferðaklúbburinn 4×4 13.09. í Hafnarhúsi appeared first on sím.