Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Opni listaháskólinn – Kynning á námskeiðsframboði 6. sept

$
0
0

Í gegnum Opna listaháskólann getur fólk sótt námskeið í öllum deildum Listaháskóla Íslands.

Kynning á Opna listaháskólanum fer fram í hádeginu 6. september í Laugarnesi. Verkefnastjórar úr deildum skólans fara yfir námskeiðsframboð skólaársins 2018- 2019 og svara spurningum sem upp kunna að koma.

Í fjölbreyttri námskeiðsflórunni er meðal annars hægt að sækja sér færni í að leika á ukulele, kynna sér tónlistarmanninn John Cage, styrkja raddbeitingu, tileinka sér grunnhandbrögð við tálgun úr ferskum við, læra að skrifa leikrit, fræðast um byggingarlist á Íslandi eða læra sýningagerð og sýningastjórnun, svo fátt eitt sé nefnt.

Kynningin fer fram í fyrirlestrarsal 24 á jarðhæð í húsnæði skólans að Laugarnesvegi 91.

Öll velkomin!

The post Opni listaháskólinn – Kynning á námskeiðsframboði 6. sept appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356