Litka í sumarskapi!
Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
5. júlí – 31. ágúst 2018
Sýningaropnun 5. júlí kl. 17
Litka er félag fólks á öllum aldri sem sameinast í áhuga sínum á myndlist. Félagið var stofnað árið 2009 og hefur síðan þá haldið úti blómlegu starfi og sýnt á fjölmörgum stöðum.
Litka hefur á að skipa rúmlega hundrað félagsmönnum, hópurinn er fjölbreyttur og einstaklingarnir með ýmiss konar bakgrunn. Fjölbreytnin endurspeglast gjarnan í samsýningum hópsins, en í sumar sýnir hópur félagsmanna vatnslitamyndir og olíumálverk á Borgarbókasafninu Menningarhúsi Spönginni.
Á sýningunni eru vatnslitamyndir og olíumálverk.
The post Sýning félagsmanna í Litku – myndlistarfélagi appeared first on sím.