Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Myrkraverk: Leiðsögn sýningarstjóra og síðasti sýningardagur 22/04 á Kjarvalsstöðum

$
0
0

Myrkraverk: Leiðsögn sýningarstjóra
og síðasti sýningardagur
Sunnudag 22. apríl kl. 16.00 á Kjarvalsstöðum

Leiðsögn um sýninguna Myrkraverk með Markúsi Þór Andréssyni sýningarstjóra á síðasta degi sýningarinnar.

Á sýningunni eru verk listamanna sem hafa fengið innblástur úr þjóðsögum og ævintýrum eða skapað sinn eigin huliðsheim. Hvort tveggja endurspeglar mannlega tilvist, samskipti, tilfinningar og hugarástand.

Sýningin er uppfull af dularfullum og spennandi verkum sem kveikja á ímyndunaraflinu.

Hér mætast ólíkar kynslóðir listamanna:
Alfreð Flóki (1938–1987)
Ásta Sigurðardóttir (1930-1971)
Jóhanna Bogadóttir (1944)
Kristinn Pétursson (1896–1981)
Sigga Björg Sigurðardóttir (1977)
Sigurður Ámundason (1986)

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

The post Myrkraverk: Leiðsögn sýningarstjóra og síðasti sýningardagur 22/04 á Kjarvalsstöðum appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356