Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Fjölbreyttir viðburðir á Barnamenningarhátíð dagana 17.-22. apríl

$
0
0

Barnamenningarhátíð í Reykjavík fer fram dagana 17.-22. apríl. Listasafn Reykjavíkur tekur þátt í hátíðinni nú sem endranær og er af nógu að taka fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Fyrir utan að frítt er inn á allar sýningar safnsins fyrir börn og gesti þeirra meðan á hátíðinni stendur hýsir safnið fjölda ókeypis viðburða. Ber þar helst að nefna Pop-Up ævintýraleikvöllinn sem haldinn verður í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og grafíksmiðju Prent og vina á Kjarvalsstöðum.

Dagskrá Barnamenningarhátíðar í Listasafni Reykjavíkur

Þriðjudag 17. apríl til sunnudags 22. apríl
Kjarvalsstaðir

Reykjavík – borgin okkar og Lego Star Wars ljósmyndir eftir börn – sýningarnar eru opnar alla hátíðina

Miðvikudag 18. apríl kl. 16-17.00
Hafnarhús 

Húlladúllan og sirkustímaflakkararnir – sirkussýning 5-9 ára barna

Fimmtudag 19. apríl kl. 16.00 til laugardags 21. apríl
Hafnarhús 

17 sjálfbærni þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna – skapandi nálgun unglinga

Laugardag 21. og sunnudag 22. apríl kl. 10-12.00
Kjarvalsstaðir 

Prent og vinir – grafíksmiðja – Facebook

Sunnudag 22. apríl kl. 10-16.00
Hafnarhús

Pop-Up ævintýraleikvöllur Facebook

Ókeypis aðgangur.

The post Fjölbreyttir viðburðir á Barnamenningarhátíð dagana 17.-22. apríl appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356