Listasafn ASÍ auglýsir eftir tillögum frá listafólki sem vill koma til greina við val á verkum til innkaupa fyrir safnið og til sýningarhalds á tveimur stöðum á landinu.
Listráð safnsins fer yfir allar tillögur og velur listamann/listhóp til að kaupa af verk fyrir um 2 milljónir króna. Þetta er í annað sinn sem safnið kallar eftir tillögum frá listafólki. Árið 2017 var óskað eftir tillögum í fyrsta sinn við góðar undirtektir og í ár verður sami háttur hafður á og valinn einn listamaður/listhópur úr innsendum tillögum. Á næsta ári – 2019 – er ætlunin að kalla eftir tillögum að nýju. Þeir sem sendu inn tillögur í fyrra eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar og senda þær inn að nýju jafnvel þó að um sömu tillögur sé að ræða.
Auk kaupa á verkum verður þeim sem fyrir valinu verður boðið að halda sýningu á tveimur stöðum á landinu. Safnið stendur straum af öllu sem viðkemur sýningarstaðnum, flutningaskostnaði, tryggingum, vinnu listamannsins, ferðum og uppihaldi. Vinna listamannsins felst m.a. í uppsetningu sýninganna, listamannaspjalli, leiðsögn og móttöku skólahópa. Greiðslur taka mið af Framlagssamningi SÍM frá 2015.
Ekki verður um að ræða greiðslu fyrir framleiðslukostnað listaverka fyrir sýningarnar (að undanskildum efnisstyrk þar sem það á við) og verkin verða áfram í eigu viðkomandi að undanskildum þeim sem safnið kaupir.
Áhugasamir er beðnir um að senda tillögur sínar á netfangið listasi@centrum.is eigi síðar en á miðnætti mánudaginn 12. febrúar 2018.
Umsóknir skulu innihalda eftirtalin fylgigögn (þ.e. fylgiskjöl með tölvupósti):
1 – Ferilskrá. (þ.m.t. upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang).
2 – Hugleiðing/þankar (hámark 500 orð).
3 – Sýnishorn af allt að 5 verkum sem koma til greina með stuttum skýringartexta fyrir hvert verk (hámark 200 orð hver). Ath. virða ber hámarksfjölda tillagna. Hafa ber innkaupastefnu safnsins í huga (sjá hér að neðan) við val á tillögum til sendingar.
Opnað fyrir umsóknir: 25. janúar 2018
Skilafrestur tillagna: 12. febrúar 2018
Niðurstöður kynntar: Fyrir miðjan mars 2018
…………………
Nýjar áherslur hjá Listasafni ASÍ
Í byrjun árs 2017 samþykkti rekstrarstjórn safnsins áætlun til fimm ára þar sem lögð er áhersla á að kaupa ný verk markvisst inn í safneignina og efla sýningarhald í samstarfi við aðrar stofnanir og samtök víða um land. Skipulögð verður tvíhliða sýningardagskrá, annars vegar sýning á nýjum verkum sem valin hafa verið til kaups og hins vegar kynning á eldri verkum í safneigninni, en þar er notast við krafta listafólks á ýmsum sviðum. Lögð verður sérstök áhersla á samvinnu við skóla í þeim landshluta sem sýningarnar fara fram.
Innkaupastefna Listasafns ASÍ
Innkaupastefna safnsins tekur mið af því menntunar- og miðlunarátaki sem safnið hefur nú ráðist í með sýningarhaldi víða um land. Valin verða og keypt inn ný verk þar sem viðfangsefni og/eða miðill endurspeglar tíðarandann með afgerandi hætti.
Listráð Listasafns ASÍ
Listráð Listasafns ASÍ 2017-18 skipa sýningarstjórarnir Dorothée Kirch og Heiðar Kári Rannversson auk safnstjóra Elísabetar Gunnarsdóttur sem jafnframt er formaður. Listráðið er skipað til tveggja ára í senn og er rekstrarstjórn safnsins til ráðuneytis um innkaupastefnu og val á listafólki.
………………………..
Listasafn ASÍ var stofnað árið 1961. Safnið er eign Alþýðusambands Íslands og starfar samkvæmt reglugerð samþykktri af miðstjórn þess. Iðnrekandinn og bókaútgefandinn Ragnar Jónsson í Smára lagði grundvöllinn að listasafninu með því að gefa ASÍ málverkasafn sitt – um 120 myndir – eftir marga af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við vinnandi fólk í landinu. Listasafn ASÍ hefur alla tíð starfað með þetta að leiðarljósi og hefur m.a. sérhæft sig í myndlistarsýningum sem settar eru upp á vinnustöðum og í stofnunum víða um land. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun þess fyrir tæpum sextíu árum og geymir nú um 4000 verk.
The post Listasafn ASÍ kallar eftir tillögum frá myndlistarfólki appeared first on sím.