Þriðjudaginn 24. október kl. 12 flytur Ásdís Kalman, myndlistarkennari erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
Ásdís Kalman leiddi verkefnið um Börn á flótta í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi og Þjóðminjasafn Íslands. Verkefnið byggði á myndlistarsmiðjum sem haldnar voru fyrir börn og unglinga á flótta. Samnefnd sýning á afrakstri smiðjanna var sett upp í Þjóðminjasafninu á Barnamenningarhátíð 2017.
Ásdís mun m.a fjalla um aðdraganda sýningarinnar, framkvæmd smiðjanna og sýninguna á Barnamenningarhátið 2017.
Fyrirlesturinn er þriðji í röð hádegisfyrirlestra Þjóðminjasafnsins haustið 2017 og er skipulagður í tengslum við sýninguna Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
The post Hádegisfyrirlestur Þjóðminjasafns Íslands. Börn á flótta appeared first on sím.