Útgáfuhóf í Listasafni Íslands sunnudaginn 8. október kl. 14 – 16 í tilefni af útgáfu barnabókarinnar Að hugsa sér (Imagine)
Bókin er unnin í samvinnu við Amnesty International og í henni birtist textinn við hið ódauðlega lag John Lennon, Imagine í íslenskri þýðingu Þórarins Eldjárns. Myndirnar í þessari áleitnu bók eru eftir franska listamanninn Jean Jullien.
Yngstu gestunum býðst að taka þátt í að útbúa litríkan fuglahóp sem mun fljúga um safnið og dreifa skilaboðum um hvað friður merkir fyrir okkur öll. Barnakór Ísaksskóla kemur og flytur lagið fyrir viðstadda.
Bókin fer í almenna dreifingu í byrjun nóvember en verður fáanleg í forsölu í Safnbúð Listasafns Íslands frá útgáfudegi og á meðan birgðir endast.
The post Útgáfuhóf í Listasafni Íslands – Að hugsa sér appeared first on sím.