Kæru vinir og velunnarar!
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýninga Önnumaríu Lind Geirsdóttur; Veðurfregnir og Gigors “Angels among us” í ARTgallery GÁTT, Hamraborg 3a, Kópavogi, laugardaginn 23.september kl 15-18. Annamaría Lind er nýgengin til liðs við ARTgallery GÁTT og er þetta hennar fyrsta einkasýning í galleríinu. Gigor er búinn að vera búsettur á Íslandi í 5 ár, kemur frá Lettlandi, og er þetta fyrsta einkasýning hans bæði í GÁTTINNI og hér heima á Íslandi.
Sýningarnar standa yfir yil 15. október og það er opið miðvikudaga til sunnudaga kl 15-18
The post Boðskort ARTgallery GÁTT appeared first on sím.