Verið velkomin á einkasýningu Auðar Ómarsdóttur, laugardaginn 15. júlí kl. 15:00 í gallerý Hvítspóa, Óseyri 2, Akureyri.
Auður er fyrst til að sýna í nýju sýningarrými gallerý Hvítspóa, en það er rekið af Önnu Gunnarsdóttur listakonu.
Á sýningunni má sjá verk sem bera keim af klassískri grísk-rómverskri listasögu en einnig karllægum heimi nútíma byggingariðnaðar. Verkin eru samsett af teikningum, málverkum og skúlptúrum, sem eru unnir úr fundnum hlutum.
Með titlinum á sýningunni vísar Auður í lag eftir Shaniu Twain; ‘Man I feel like a woman’.
Hér má lesa texta viðlagsins :
Oh, oh, oh, go totally crazy-forget I’m a lady
Men’s shirts-short skirts
Oh, oh, oh, really go wild-yeah, doin’ it in style
Oh, oh, oh, get in the action-feel the attraction
Color my hair-do what I dare
Oh, oh, oh, I wanna be free-yeah, to feel the way I feel
Man! I feel like a woman!
Auður útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands 2013 og hefur síðan unnið að list sinni og sýnt víðsvegar. Nýlega lauk einkasýningu hennar, Situations, í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Einnig ber að nefna að verk eftir hana eru á sumarsýningu Listasafnsins á Akureyri, sem nú stendur yfir. Man I feel like a woman er sjötta einkasýning Auðar eftir útskrift.
The post Auður Ómarsdóttir í gallerý Hvítspóa á Akureyri 15.07 appeared first on sím.