Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Hjólaleiðsögn með Steini Ármanni leikara

$
0
0

Sunnudaginn 16. júlí mun Steinn Ármann Magnússon leikari hjóla með gesti um Viðey í leiðsögn sem verður bæði gamansöm og fróðleg. Hjólaleiðin er ekki strembin þannig að allir ættu að geta komið og verið með, hjólagarpar sem og byrjendur á öllum aldri. Þátttakendur koma með eigin reiðhjól og þeim verður kippt með í ferjuna. Allir eru velkomnir enda hentar hjólatúrinn öllum sem hafa gaman að því að hjóla.

Siglt verður stundvíslega frá Skarfabakka kl. 13:15. Þeir sem vilja fá sér léttan hádegisverð í Viðeyjarstofu fyrir hjólreiðaferðina er bent á 12:15 ferjuna.

Gjald í ferjuna fram og til baka er 1.500 kr. fyrir fullorðna, 1.350 kr. fyrir eldri borgara og 750 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt.

Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna  og af veitingum í Viðeyjarstofu. Handhafar Gestakortsins sigla frítt.

The post Hjólaleiðsögn með Steini Ármanni leikara appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356